Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki og vátryggingastarfsemi

381. mál á 153. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja að búsetuskilyrði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum samræmist skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja ásamt Færeyingum verði undanþegnir búsetuskilyrðum til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum. Ríkisborgarar þessara ríkja munu því ekki þurfa að sækja um undanþágu til fjármálaeftirlits vegna búsetu utan EES-svæðisins til að geta verið stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í fjármálafyrirtækjum og vátryggingafélögum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
Lög um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar



Síðast breytt 28.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.